Hugarheimur fallega gaursins ;)
13.08.2007 19:40:51 / hemmi

Love it .....

Everything For Love

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.08.2007 00:19:50 / hemmi

Allir saman !!!!!

Forsala dragkeppni ísl er hafin á Q-bar og er miða verð 1000 kr. En annars 1500 kr við inngang þann 8 águst í Loftkastalanum. Endilega látið ykkur ekki vanta á 10 ára afmæli keppninar ;)

KV Stjórn Dragkeppni ísl 2007


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.07.2007 01:08:10 / hemmi

Ég er mættur ;)

Ætli það sé ekki komin tími á að blogga fyrst maður hefur loksins tíma fyrir það. Það er alveg ótrulegt hvað er alltaf mikið að gera hja mer, ef eg er ekki að klippa eftir vinnu þá er ég á fundum, svo svona inná milli kikjum við Baddi ut að borða eða kaffihus með strakunum okkar. Allavega þá var ég í Stokkhólmi í 9 daga á gay ráðstefnu, dises hvað ég sé ekki eftir að hafa farið, ég lærði svo sjuklega mikið á þessu fyrir utan hvað ég kinntist æðislegum krökkum frá fullt af löndum, reyndar hafði ég mer aldrei ætla að fara til Svíþjóðar hehe En aldrei að segja aldrei ;) við lentum reyndar fyrst af öllum við ísl hópurinn en notuðum bara timinn til að skoða í buðir og éta svo seinna um daginn voru öll löndin hoppandi inn og var æði að hitta hann Vigni en hann kom með danska hópnum, svo fyrstakvöldið var djammað PÍNU shit hvað var gaman, reyndar kinntist ég stelpunum frá latvia og pollandi rosavel og krökkunum frá dk. Við áttum orðið á fyrri staðnum sem við gistum á serstakan stað þar sem við enduðum alltaf eftir djammið og letum eins og alvöru Queer, svo var farið með okkur á mid summer hátið sem var haldin i svona dyra og fjölsk garð, það var geggjað að upplifa það og sjá flottu dyrinn og gömlu husin, svo fannst mer reyndar einn fyrirlestur soldið hallærislegur eða leikur og var það þar sem við áttum að dæma folk á myndum hvort það væri Queer eða ekki, mér fannst þetta ekkert sniðugt, okkur kemur bara ekkert við hverjir eru það og ekki fannst mer þetta var sóun á tíma, reyndar fannst mer einn af mest áhugaverðustu lestrunum var um femminista þvi maður hefur alltaf verið með ákveðna steriotypu af þeim þar sem þær eru rauðh, loðnar undir höndum og fótum og feitar + lessur, þetta synir bara heilv fordomana í manni og fáfræði og tel ég mig vera í dag femminista , eins og var sagt a einum fyrirlestrinum að allir l.b.g.t ( lesbian,bi,gay og trans)  við gleimum svo oft hvort öðru í baráttumalum okkar, við erum pinu sjálf elsk og alltaf að gangrina hvort annað, td hommarnir, við ættum að berjast fyrir þvi að lessurnar eigi að fá hærri laun en nei það sem við segjum , til hvers eigum við að hjálpa ykkur, þig getið átt börn ekki við, þá svara þær við viljum ekki hjálpa ykkur þvi þið eigið allt og við ekkert, hvernig væri frekar að segja hey STÖNDUM SAMAN OG RETTUM ÞETTA AF !!!!!! svo finnst mer alltof mikið af fordómur fyrir trans á ísl og þá ekki bara af straight, þau vita varla að þetta er til heldur finnst mér fordómarnir mestir hjá L.B.G fólki, það erum við sem gleimum að fyrir transsexualperson að þau njota engrarettar, hafið þið pælt í þvi, ég þori alveg að viður kenna að ég var með fordoma og huggsaði alltaf bara um okkur strakana, en það má ekki, L.B.G.T fólk á að hjalpast saman svo við endum ekki eins og Danmörk, þar er allt bara stop þvi öllum er sama og halda þeir hafi það svo gott, en svo er raunin ekki, við ísl erum komin langt fram ur þeim og öruglega ein af þeim fremstu, það eina sem við verðum að laga strax og fara tala meira um og efla smá fræðslu er transsp. hvað haldið það seu margir strakar og stelpur á þessum klaka sem vita hvað þau eru en vita ekkert hvernig þau eiga að snua ser í þessu og hvað þá mörg sem eru gay en þora ekki utaf fordómum, fullt og við L.B.G verðum að hætta fordómunum og reyna afla okkur líka fræðslu og skilning, afhverju eigum við að ætla skilnings annara þegar við gefum okkar vinum eða fjölskildu ekki einu sinni skilning, ég hef verið að huggsa rosalga mikið um þetta allt saman og þetta gerir mig svo reiðann , mestufordómarnir liggja ekki á normalfólkinu eins og það myndi kalla sig, er hjá okkur sjálfu Queer fólkinu, æji þetta er öruglega allt alveg í drullumalli hér ég vona að einhverjir skilji mig og eru sammála, það var margt uti í Stokkhólm sem eg lærði og held að það væri nauðsilnegt að kinna fyrir L.B.G.t fólki á ísl og þess vegna vinum lika en allavega byrja á L.B.G.T eins og oft er sagt, allt tekur sinn tíma, ( eitthvað sem ég þoli ekki) nóg með þetta það gerðist lika svo margt annað skemmtielgt, 29 juni kom Baddi til Stokkh og við flugum saman til köben, já ég nennti ekki að fljuga einn þannig hann flaug fyrst til Stokkh og vorum við blekaðir á flugvellinum og hlógu flugfreyjurnar af okkur þvi eins og venjulega hja hermanni og hefð, þá misstum við næstum af velinni hehehe. Um kvöldið kiktum við á strakana og var ekkert smá gaman að sjá Haffa og Arnar litla barnið mitt guð ég þurrkvuntan var með tár í augunum bara og læti og var farið á alla staði bæjarins og drukkið eins og svin ;). laugardaginn þá fóru strakarnir með mig í tivoliið ;) þvi litla barnið eg varð að fara í tækinn og keypti Baddi band á mig þannig ég matti fara í öll tækinn og náði ég að plata Leif með mér i þau hehe meðan Baddi og Gísli horfðu á. Baddi er svo heilv lofthræddurog neitaði að fara í tækinn hehe svo komu haffi og arnar og fórum við ut að borða á eitthvað fint ítalsktog var bara haldið heim og meðan Baddi og Gísli fóru að kaupa vin stukkum við uppí rumið okkar badda og kurðum saman eins og við gerum alltaf í utlöndum saman hehe Svo um kvöldið komu danskaparið og andres oddur og vignir og var drukkið MIKIÐ og farið í bæinn þvi það var loka kvold á boiz þvi hann var að loka og var farið á allt sem hægt er held ég bara hehehe svo nenntum við Baddi ekki að taka leigubl heim við sáum Radison Sas hótel og tékkuðum okkur bara þar inn hahaha báðir á perunni og skelltum okkur í rómó bað og herlegheit, sunnudagurinn var þynnkadauðans en við letum okkur nu hafa það ég baddi,leifur og gisli og skelltum okkur í bæinn og fórum reyndar snemma heim eitthvað um 4 enda drullu þreyttir, manudagurinn fór í það versla og pakka og misstum við næstum af velinni heim ég og baddi en guði sé lof þegar við komu alltof seint þá var buið að seinka fluginu okkar ;), shit hvað var gott að komast heim og komast í vinnuna aftur og svona, reyndar fór öll vikan í að klippa fólk eftir vinnu þannig ég átti mer ekkert mikið lif eftir vinnu,

 

Svo fórum við Reyndar utað borða á laugardaginn með nokkrum af stofunni á Apótekið og var það æði, kiktum svo í afmæli hjá Beggu minni og svo til hildar og karenar og á gay ball, dises hvað var gaman, ég og baddi dönsuðum og dönsuðum, djöfull var gaman, enda þétt dagskrá hehe....

 

Annars var svo notað gærkvöldið bara í dvd gláp hjá okkur Badda og er eg buinn að vera heima með heilv turverki dauðans og erum við Baddi að pæla fara í útileigu á föstudag og fól hann mer það verkefni að leita af tjaldi á netinu sem mig langar í, reyndar bara buinn að finna eitt, en aldrei að vita

 

Ég held þetta sé komið nóg af heilv skriftum hér, ef þið hafið komist í gegnum þetta áfallahlalparlaust þá elska ég ykkur....

 

Kv hemmi tjaldmaður.......


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 17:05:40 / hemmi

Veikur og þreyttur :(

Veikur og þreyttur :(

Já það eru sko ekki heilv 7 dagarnir sælir á þessum bæ, nei nei hehe uff ég er buinn að vera veikur í gær og dag með hita, hvef, hósta, beinverki og andsk hausverk sem neitar að fara. Hvern andsk gerði ég i fyrralifi til að þurfa þola þetta, ég hef öruglega verið kaþólskurprestur sem misnotaði alla altarisguttana og er þessa 2 daga að gjalda fyrir það og svo auðvitað það sem ég hlaut alla ævi var að vera áhugamaður um kynlif samkynhneigðra manna, velklæddurróni og samkynh undrabarn, en það er lika fint, hver vill eyða heilv tima i krakka og þurfa vera innikroað heima hja ser því engin getur passað, allavega ekki ég sko,

 ég þarf að skoða heimin, eiga hus á Ítalíu og jafvel eitt í köben líka, þannig ég se engan tima fyrir krakka kvikindi, hentar mér finnt að eiga bara Carter og Sjarma, þó hann Carter minn se á einhverju mótþróarskeiði þessa dagana, hann gerir allt sem má ekki og þó maður skammi þessa elsku þá gerir hann þetta bara aftur þegar maður sér ekki til    Svo hef ég það ekki í mer að skamma greyið, hann setur alltaf upp þennan vorkunnar svip þannig að eg tek hann upp og kissi hann og knusa, alveg hvað hann getur spilað með mann   . En svona er föðurástin vist, það segir mamma allavega hehehehe.....

 

En já Hermann tók sig til um daginn og tók þá þátt í hargreiðslukeppni sem var haldin á Nasa og var ekkert smá gaman að vera með, meira segja kom hun Ragnheiður í kastljósi og bað um að fa að taka viðtal við mig sem var svo synt beint frá keppninni ;) Seinna um kvoldið kikti eg siðan til Arnars vinar hans Badda og vorum við þar 3 og Hrund og skelltum við okkur Baddi reyndar siðan á gay ballið á kaffi rvk og kiktum við Baddi síðan bara Q- bar og var ég bara kominn með nog enda lika alveg edru nema eg hafði drukkið 2 bjora fyrr um kvoldið og 2 kampavinsglös, Baddi minn var nu soldið hellaður enda bara gaman hehehe ekki á hverju djammi sem ég se hann drukkinn og ég edru hehehe svo á fimtudaginn skelltum við okkur baddi að borða á búllunni,   ójjjjj barasta ALDREI AFTUR......

 

Svo á föstudaginn skelltum við Baddi okkur í grill til Leifs og var setið þar og etið og drukkið sma, eg fekk mer 2 bjora en meikaði ekki meir og fórum við Baddi bara heim um 12, voum ekki að meika bæinn ja btw shit hvað Cucci hans Leifs er ofvirk hahahaha,,,,  ef það ætti að gefa einhverjum róandi þá henni, æji samt hun er svo mikið æði og buttuð alls ekki feit ;)

 

Svo á laugardaginn fór ég i 50 afmæli hja systir pabba, reyndar var ég á mörkunum að nenna en hun móðir min hótaði að ............. ef ég myndi ekki drullast til að klæða mig og koma með þeim, reyndar  er ég mjög ánægður á að hafa farið :)  það var svo drullu gaman, fyrst vorum við i einhverjum bát þar sem fordrykkur var, svo var hægt að kikja á eitthvað safn niðri og ætlaði minn að kikja en þegar eg var kominn niður 2 tröppur helt eg nu ekki, heilv fiski lykt ojj ég kugaðist svo að ég hljop upp, þeir sem þekkja mig vita að það get eg ekki þolað, en svo eftir smá þá opnaðist baturinn og vorum latin ganga yfir i annan þar sem matur var og 2 gaurar að spila, svo þegar allir voru bunir að borða þá allt einu kveiknaði á batnum og hann sigldi með okkur uta sjó   shit mmarrr... en ómg hvað var gaman, þessi hljomsveit var geggjuð og við mamma dönsuðum og dönsuðum og svo for baturinn fram og til baka sem gerði þetta bara ennþá skemmtilegra, uff eg ætla sko að halda afmælið mitt þarna hehehe svo seinna um nottina kiktum ég og frænka min í utskrift og var það ykt gaman lika og hitti Baddi mig þar og kiktum við svo bara 2 á Q- bar en mig var farið að langa heim, fannst þetta vera gott bara, nennti ekki að vera djamma framm á morgun og vera eitthvað að skemmta frábært kvold með ofdrykkju og rugli þannig við baddi forum bara heim um 02 og fórum i bað með kerti og herleg heit ykt nice bara að liggja i goðu baði og hlusta á góða tónlist saman, svo sunnudaginn fórum við Baddi að fá okkur að borða um 13 og skoða grill, kiktum í Egg og var eitt svakalega flott en svo kiktum við í hagkaup og sa ég eitt geggjað og sá Baddi að mig langaði í það, það er mergjað, risastort ur áli og með pönnu og einhverju shiti og svo er hella á því , eins og Gyða sól segir, það er hægt að elda ofan i heilt landsmót á þessu grilli hehehehe.......  Svo var bara  rólegur manudagur i vinnunni, eg var að vinna uppá heildsölu þegar Baddi kom allt i einu og hlóg hann að mer þegar hann sa mig bara sitja og skoða timarit en ekki vinna, enda var nu ekkert margt sem ég gat gert sko hehehe....  og sagði hann mer að hann væri að fara kaupa grillið  ;) vá hvað við verðum með mikið af grillveislum semsagt í sumar, nuna verður sko grillað allar helgar og drukkið Hvító og sungið í sumar, reyndar ætluðum við að grilla á laugardag en vorum bunir að gleima að við erum að fara í grill til hennar Hrundar baby og læti, en sem betur fer er þetta 3 daga helgi ;)  ;)  ;)  ;)

Svo er ég buinn að fá ur prófunum, fékk reyndar tvær 6 

og svo tvær 7 og þrjár 8 og tvær 9 þannig kallinn er bara drullu sattur ;) og stoltur af sér mmuuhhaaaaa......

En shit held ég se buinn að skrifa heilv ritgerð hér hehehe... en like i dont care .... mér leiðist að vera veikur heima, reyndar er Baddi búinn að vinna og fer að koma heim, eg er notaður í kvold sem einhver asnaleg barnapia þvi pabbi er að fara horfa á leik og mamma að fara í kokteilparty, ég sem kann ekki einu sinni að passa sjalfan mig hvað þá aðra hahahaha..... þetta verður eitthvað furðulegt börnin min gráhærð og góð...

 

En ja nenni ekki meira, komið nóg, love you al.....

 

Kv Hemmi bestasti barnapassari... right.....


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 12:11:08 / hemmi

Leg !!!!

 

Jæja þá held ég að það sé alveg timi á að tjá sig soldið enda kominn heilv timi til og er eg buinn að upplyfa allan andsk hehe...

 

En já daginn kom Baddi uppá stofu til min og við lituðum og skelltum okkur ut að borða á solon og svo í þjóðleikhusið á Leg og var það geggjað, við lagum í kasti og shit svarti húmorinn og var þetta ýkt nice föstudagskvöld 2 saman bara.

 

Svo laugardaginn kiktum við Leifur með Heiðu vinkonnu minni í bustað rett fyrir utan keflavik og tókum við Leifur hundana okkar með og fórum utað labba með þá og kiktum í pottinn og drukkum og gerðum og til og kiktum á djammið í keflavik hahahahahahahaha  reyndar bjuggumst við leifur ekkert við einhverju djammi þar, kiktum á paddy´s og svo á hápungtinn ætluðum reyndar bara að stoppa þar stutt en tónlistin var svo geggjuð að við vildum ekki fara og dönsuðum við kósveitt með, þetta var eins og að vera á hommaballi með Palla bara hehe reyndar saum við alveg nokkra upprennandi fagga þarna, svo eitt skiptið vorum við leifur að dansa og einhver heilg gutti byrjaði að hanga utan í okkar oojjj endaði með að Heiða sagði honum að fara og þá byrjaði gaurinn eitthvað að spurja hvort ég og leifur værum ekki að skemmta okkur hehe svo áður en við vissum var kl orðin 6 og lokað, nema viti menn við hittum uti einhverja 2 gutta sem voru svona drullu hressir og vildu koma með okkur í bústaðinn ;) þannig að við skelltum okkur 5 uppeftir og var ykt gaman og var svo sætt að sjá strakana leika við hundana okkar leifs, reyndar svo um 08 þegar eg heyrði að það ætti að fara í nektarpott þá tók ég Carter og fór með hann inn í rum að sofa, var ekki alveg að nenna í pottinn.

 

Svo seinasta laugardag var árshatíð á stofunni og kiktum við á solon í hadegismat og svo uppá stofu að skala og greyða okkur og svo foru allir heim að skipta um föt og var hittingur heima hja Bödda sem á stofuna og var ekkert smá gaman, svo um 20 kom hummerlimminn að sækja okkur og skutlaði okkur á Hótel Sögu þar sem árshátið hárg fólks á Íslandi var haldin og auðvitað var minn maður á perunni og fór sem betur fer heim að verða 01, enda veitt ekki af hahaha...

 

Annars er bara planið um helgina að fara í grill til Hildar og Karenar og svo ú utskrift hja henni Fanney uppá stofu og svo NASA BABY, ég er buinn að fara á þetta ball á nasa seinustu 4 ár og alltaf jafngaman og troðið og má næstum bara kalla þetta fagga ball hehe...

 

En já verð að fara drulla mér er að fara í heilv próf :(

 

Kv Hemmi prófþreytti maður.....


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 17:51:47 / hemmi

þegar ykkur langar !!!!

Þegar ykkur langar !!!!!

Andsk ég er með þetta lag á heilanum, nema eina eg er með minn texta við það lika hehehe ætla nu ekki að fara segja ykkur hann ;)  En já alltaf stuð á minum og mikið að gera þessa dagana og næstu......

 

Miðvudaginn í seinustu viku vorum við bekkurinn í skólanum og var þetta sjuklega góða veður uti og ákvöðum við að grilla um kvöldið heima hjá Evu. þar mættum við öll og var drukkið og drullu gaman, fórum svo á Oliver og Vegamót öll saman, reyndar kikti ég svo á Q- bar og hittir þar fólkið af stofunni minni og var ekkert smá gaman, ég, Fanney og Kolla í svakagír og fórum við Fanney saman á kk klóstið og einhver gaur setti úta það og ég gargaði að hun væri klæðskiptingur lol lol og gat heilv guttinn ekkert sagt, þannig aumingja Fanney var orðinn klæðskiptingur hahahahaha...... Síðan hitti ég Arndisi mina og Beggu og drógu þær mig á Prikið, ég hef ekki farið þangað í ár og aldir mmarrr...  en það var gaman að kikja og fór ég siðan bara heim, nennti ekki meira :)

Svo  föstudaginn, hvað haldið þið, ´það var fri i skolanum þannig ég átti að vinna uppá stofu frá kl 9-18 nei nei Hermann sofnaði kvoldið áður yfir sjonvarpinu og gleymdi að stilla kl og vaknaði kl heilv 10:30, ég brunaði i vinnuna en viti menn, Hermann var fokking stopaður af löggunni, nr 1 gaf ekki stefnuljós.  2 var á vetradekkjum 3 var ekki í belti. 4 ók of hratt aarrggg... djöfull langaði mig að grenja og lemja einhvern og var löggan að tala við mig og ég utskyrði að ég hafði sofið yfir mig og væri seinn og var með kökkinn í hálsinum, viti menn löggan var svo elskuleg að hann sagði , farðu á morgun að skipta um dekk, keyrðu með belti og gefðu stefnuljos og ALLS  EKKI KEYRA HRATT, þannig ég slapp við allt ;)  .Mig langaði liggur við að kissa heilv logguna en það var ekki  í boði eða tími var ennþá seinn í vinnuna hehehehehe.... um kvöldið kikti ég með krökkunum á djammið en ákvað að vera edrú og bara á bíl, enda var lika ekkert smá gott að vakna daginn eftir ýkt hress og game í hvað sem er :)

 

Svo laugardagk vorum heima hjá Badda að spila og kiktum í bæinn á B5 eins og alltaf og svo Q-bar hehe... reyndar fór eg snemma heim eitthvað rett um hálf 5.

 

Svo eru prófin bara byrjuð og er ég buinn að fara í 4 próf  :( Svo er bara vinna á morgun uppá stofu og ætlar Baddi að koma þangað í klippingu og erum við svi 2 að fara í leikhús um kvöldið á söngleikinn Leg í þjóðleikhúsinu.  Já svo er kallinn að fara keppa í hárgeiðslukeppni 16 maí og hlakkar mig ekkert smá til, er buinn að fá model og næstum búinn með hugmyndina, reyndar kostar 5000 að taka þátt en Böddi sem á stofuna sem ég vinn á ætlar að borga það fyrir mig :)

 

Annars er ég bara heima að drepast í bakinu eftir að ég datt niður stigan hér heima hehehe og ætlum við Baddi bara að kikja á eftir í ljós og eitthvað, hitinn á vist að gera eitthvað gott og ég ma loksins lika fara í ljós aftur segir læknirinn minn :) óþolandi lækna vesen alltaf, reyndar gleymfi að ég að drulla mer í lyfjameðferð þessa vikuna en það reddast ég fer bara í næstu viku, ég er svo sterku að ég höndla þetta mmarrr .......

 

Annars er allt bara gott hja mer, gæti ekki kvartað yfir neinu hjá mér :) Carter átti reyndar afmæli á föstudaginn og var haldin afmælisveisla heima og læti og varð hann 1 árs litli strákurinn minn, skil ekki hvernig er hægt að elska svona litið kríli hann er mér allt litli strákurinn minn og sykurpúði hehe...

 

En já kv hemmi sykurpuðaða mella ;) 


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.04.2007 17:52:39 / hemmi

ja og nei

Alltaf það sama

Jæja þá eru páskarnir búnir og önnur helgin genginn í garð.

 

En já páskarnir voru snilld hja mer og hef eg aldrei afrekað eins mikið og þessa, þetta byrjaði allt með að við stofan fórum saman ut að borða og svo á Ladda showið, djöfulsins snilld er það, mæli 100 % með þvi. Síðan fórum við öll saman á Thorfó þar sem Andres fyllti alla og kiktum svo nokkur saman á Q- bar og siðan heim til Simba sem var eigandinn einu sinni af stofunni og var þar helt i glös, shit vinið og plus þá varla blandaði hann það og enduðum við Fanney á perunni og sem betur fer eftir tima náði ég loksins á þyrnirós = Badda til að koma sækja mig og var kl að verða hálf 7

 

Fimtudaginn vaknaði ég um 17 og var vist ákveðið að kikja í þjórsardal í hjólhýsahverfið og tók eg bara sjonvarpið ur bilnum mömmu og pabba og dvd spilarann og lá í bilnum að horfa á dvd sem við Baddi keyptum og var það bara nice að horfa á dvd í bílnum hehehe siðan var komið í dalinn og allir að opna björ nema ég, mig hreinlega langaði ekki hehehe.....

 

Síðan á föstudaginn skelltum við baddi okkur á sveita ball í hveró með á móti sól og var það bara finasta skemmtun nema við keyrðum svo í bæinn um 3 og kiktum á djammið þar með ´Má okkar. og var eg ekki að meika að drekka heldur þá en naði að klara 3 bjóra hehe

 

Svo laugardaginn ætlaði ég nu ekki að gera neitt. nema hann Hilmar hommi bauð mer að kikja til sin þar sem hann var með nokkra heima hja ser og dróg ég beggu mina með mer og var það bara ágætt, reyndar var svo farið í bæinn en eg var sem betur fer lika á bil ekki að nenna að drekka eitthvað

 

Svo sunnudaginn átti hun hildur min afmæli og var _ _ og voru allar DÍVURNAR saman komnar þar og var ekkert smá gaman, sungum dönsuðum og höguðum okkur eins og verstu krakkar , svo hringdi Þobbi minn í mig og sagðist vera koma sækja mig og viti menn, kom heilv á hummerlimmanum hehehe dises hvað var gaman, svo fóru straight strakarnir minir með mer á strakaballið og fór ég siðan að hitta Sumarliða á Q-bar og skellti mer siðan bara heim um 5 enda kominn með meira en nóg hehehe

 

Annars er skólinn bara byrjaður aftur og læti, sem þyðir nuna, skóli, vinna , vinna lika uppá stofu og þá enginn timi fyrir mig sjálfan :( enda lika profin að fara byrja ;)

Svo fór minn í fyrradag á ungfru reykjavík að sjá hana Kollu mina, Kolla er sú sem ég dansaði við í mörg ár og var hún ekkert smá flott, ýkt stoltur af henni, svo er hun lika að fara keppa í ungfrú Ísland skvísan og ætlar hun að bjoða mer lika á hana ef hun fær frímiða ;)

reyndar eftir vinnu í gær kom Hrund til min í vinnuna og gerði eg hana rosa sæta fyrir kvoldið þvi vinkona hennar hun disa átti afmæli og tokst þetta bara nokkuð vel, setti rullur í hana og greyddi ur þvi og lagaði allt og fyrst eg var fram eftir komu Hildur og Karen til min og ég klippti stelpurnar og var ég ekki kominn heim fyrr en kl 22 uuff og var ekki að nenna neinu heilv djammi og horfi bara á tv og boraði í nefið, svo er eg bara buinn að vera vinna í dag uppá stofu og var brjalað að gera, Simbi er að fara ut eftir nokkra daga í frí í 2 vikur og þa þyðir það að allir kunnarnir að dryfa sig að mæta áður og læti, mætti halda að himin og jörð væru að farast hehe...........

 

Svo er aldrei að vita hvern andsk maður gerir af þér í kvold, veit bara að ég ætla að kikja á stelpurnar og drekka nokkrar öl, svo er bara spurning um að fara bara heim, ég veit ekki hvað er að mér orðið, ég nenni ekki í bæinn lengur, langar orðið bara að hanga heim og gera ekki rassgat og er það lika að kæta mömmu mina rosalgeg að hætta þessu djamm rugli, andsk ég verð að gera eitthvað af mer í kvold, ef mamma er farinn að vera ánægð þá verð eg að gera eitthvað af mér hehe....

 

Enjá kv Hemmi super gay ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 01:55:00 / hemmi

Ég, um mig, frá mer , til mín

Allt að gerast.... DRENGUR !!!!!!

Andsk er þetta .... þessa dagana er allt að gera sig hja Hermanni Óla, um daginn vorum við Abba að kenna í grunnskóla hargreiðlu og læti og í 3 tima og fengum 14,000 fyrir nokkuð gott og var þetta  ekkert smá gaman og voru krakkarnir ekkert smá áhugasamir sem gerði þetta ennþá skemmtilegra og voru strakarnir voru strákarnir miklu áhugasamari sem gerði þetta svona gaman.

 

 allavega þá vorum við Baddi minn með matarboð um daginn og eins og flestir vita þá er ég heimsins versti kokkur í heimi og get brent allt becaus i am fucking Hermann, þannig að Baddi minn eldaði og buðum við Leif, Má, Adam, Hildi og Kareni og eldaði Baddi kjuklin með rjóma osti inni og einhverju ofan á man ekkert hvað það heitir mmarrr.. og voru kartöflur og full af yndisauka með og var þetta ekkert smá gott og heppnaðist ykt vel, við Baddi kiktum aðeins siðan í bæinn en fórum heim því eg nennti ekki að djamma,  laugardinn úm 12 forum við Baddi og Leifur minn að borða á Bakarameistarnum og skoðuðum í Husgagnav. og kiktum í kringula voðalega rólegir, siðan um kvoldið forum við til Leifs og byrjuðumað drekka og kiktum við leifur út á djammið og vorum ansilengi og var Baddi ekki hrifinn hehe...

 

Annars er eg bara buinn að vera í skólanum á fullu og var ég að byrja á nyrri stofu með skólanum og mun eg vinna þar i sumar og er þetta snilldar stofa og heitir hun Jóli og félagar og er á skólavörðustig og er þetta ein af heitustu stofunum í bænum og sér hun td um hárið á x factor keppendunum, reyndar sótti ég ekki um sko , gaurinn sem á hana hringdi uppí skóla og kennarinn minn sagði honum frá mer og benti honum á að ég væri mjög fær og duglegur ,,, sko kallinn, eg byrjaði að vinna í morgun frá 9-12:30 og var þetta bara nice, samt skrytið að vinna á stofu aftur þar sem eg vann siðast fyrir akkurat ári siðan seinast og var ekkert sma gaman að fara lita aftur meira af alvoru folki þott maður se alltaf að gera það í skólanum en ekki oftar en einu sinni í viku. Svo er eg að fara að vinna á morgun eftir skóla frá 13- 18 og er meira segja party hja stofunni á laugard og er buið að bjóða manni, veit samt ekki hvort eg fari, maður er eitthvað svo feiminn hehe

 

Svo var Steini að bjóða okkur Badda og Leif á morgun í mat í Hveragerði og ætlum við að sjálfsögðu að fara og ætlar Steini að elda Hamborgarahrygg...   Steini ég veit allt  mmuuhhaaaa ;)  þannig það verður gaman, i know it :)

 

Svo er bara heilv fagga ball á laugardag til styrktar gay íþr eitthvað hahahahahahaha lessurnar stunda varla neitt og þetta eina hommafótbolta lið tapar bara, en maður ætti samt að geta gefið þeim smá peninga, á maður ekki alltaf að hjálpa þeim sem minna meiga sin ;)

 

En já shit er ekki að nenna skrifa meira fallega, kynþokkafulla pakkið mitt ;)

 

Kv Hemmi ofur faggi nr 1 


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 16:16:11 / hemmi

Það er komið loksins hehehe

Fyrsta blogið mitt

Jæja fallega folkið mitt loksins nenni eg að bloga eitthvað, enda kominn heilv timi til hehe... allavega er mikið búið að ske í minu lifi og allt bara frábært og margt sem ég helt að aldrei myndi ske !!! allvega er eg eins og venjulega buinn að djamma eins og crazy ass mother fucker, ekki nema það að Baddi sem ég var með á siðasta ári að við byrjuðum aftur saman og trulofuðum okkur og var haldin frábær trulofunarveislu og buðum við öllum vinum okkar og settum við upp hringana fyrir framan þá og var það eitthvað ekki á minum lista á þessu ári, eg ætlaði bara að einbeita mer að skólanum og búið en þegar maður á eitthvað serstakt þá er ekki hægt að neita þvi eða skemma það þó mörgum finnist margt vera rugl og ekki skilja, Það er lika þeirra mal ekki okkar :)

 

En ja nuna ætla eg að fara reyna bloga her en og siðunni minni. Núna um helgina er allt að gerast, við Kristjan  ( baddi ) erum með matarboð hjá okkur og verða Már. Leifur, Hildur, Karen og kannski Adam gaurinn sem Már er að deita, hann er algjört æði og ætlum við Kristjan að hafa kjukling, bakaðar kartöflur, Brúna sósu, hvitlaukssósu, hvitlauksbrauð og fleira með. Þetta verður snilld.  Svo erum við Dívurnar að fara í afmæli hjá Halli straight vini minum á laugardag og ætlum við faggarnir að gera allt crazy ;) ( eins og okkur einum er lagið )

 

ju hvað haldið þið, eg var komin með svo ógeð af harinu á mer að ég let klippa það sjukt stutt og þá meina ég stutt, fagginn eg er orðinn eins og versti kani um hausinn og shit hvað eg var buinn að gleyma hvað eg er dökkh. hehehe gaman gaman...

 

æji hvað þetta er sætt við Kristjan er sofnaður uppi i rumi og er svo sætur að ég gæti tekið hann og kreist hann fram og til baka en eg veit að ef eg myndi gera það myndi hann ekki brosa hehe allavega myndi eg ekki gera það hehe........

 

En ja þetta ætti að duga í bili

 

kv hemmi og Baddi sofandi þyrnirós


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 12:53:41 / hemmi

kikið

www.myspace.com/hemmi_diva


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.03.2007 11:42:31 / hemmi

Hann er á lifi

Jæja sorry þetta heilv blogg leysi, eg mun blogga í kvöld eg lofa þvi, það er bara svo mikið búið að ske hja mer að eg gæti skrifa 10000000000   linur hehehe...

 

 

kv hemmi faggi nr 1


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 20:00:15 / hemmi

Strax helgi shit !!!!

Jæja þá er en ein helgin mætt, þær birtast bara alltaf svona aftan á mann og bregða manni alltaf orðið hehehe....

 

En ja seinasta föstudag var brjalað að gera hjá mer, fór á föstudaginn i party með öllum krökkunum sem eg var i leikriti sem het Lifi Rokkið og var ekkert sma magnað að hitta alla og heyra hvað allir eru bunir að vera bralla og sumir komnir með börn og sumir komnir með maka og aðrir að reyna klara skolann, svo hringdi Hallur elskan i mig og fekk að koma til min og fórum ég, hann og Heiða vinkona min sem var með mer í söngleiknum og dansari saman á andar ungann, Hressó og fórum svo við Haluur baby á Cozy blek fullir að reyna dansa eitthvað en gekk ekki vel minnir mig hehehe

 

Laugardaginn var ég að vinna frá 12-18 og fórum við Alex siðan i útskrifar veisluna hjá leif i Hveragerði og vorum við alex með herbergi á gistiheimili og komum óvart 2 timum og seint i veisluna, þvi eg sofnaði mmmuuuuhhhaaaaa    ;)   svo var eg með heilv bolgið auga allt kvöldið shit sumt á bara ekkert að geta farið i augað á manni sem betur fer var þetta bara litið en sumum fannst þetta voðalega fyndið en ekki mer fyrr en seinna um kvöldið hehehehe þetta er var snilldar kvöld allir svo hressir og fullir og Ylfa var þarna og söng hún svo fyrir okkur og stóð hun sig eins og hetja, siðan kiktum ég, alex,bjössi, rakel og guðny á hotelið þeirra og vorum á perunni þar hehe og vorum við alex komnir uppá gistiheimili um 7 eða meira og sofnuðum,,, eg man ekki hvenar hehehehe.

 

Sunnudaginn fórum við um 15 heim þvi Alex vildi horfa á einhvern heilv fótboltaleik hehe og for eg að vinn um 18 og var bara nice að vinna :)

 

Svo er vikan buinn að vera frekar bussy, skoli vinna og hanga með Halli, finnboga og fullt af folki og læra, td i gær var eg i fokkin 4 tima að læra allt fyrir daginn í dag, þetta er ekki manni bjóðandi hehehe reyndar skeði það að mamma varð að fara í aðgerð og var i 2 daga á spitala og er komin heim en má ekkert hreyfa sig þessi elska, æji hvað er gott að eiga góða foreldra sem gera allt fyrir mann og er held eg kominn timi á að eg fari að reyna gera eitthvað meira fyrir þau eða meira með þeim.

 

Svo vorum við i dag að fá nyja hundinn og heitir hann Sjarmi og er svo sætur og feitur hehehe nuna eginum við 2 sæta cavalier hund eða eins og eg segi þá eigum við 2 sæta straka sem eru algjör yndi, eg fer að setja inn mynd af þeim saman ;) Vitið þið hvað ég er bara nokkuð sáttur með þetta nyja ár, það er svo 110 % betra en fyrrihluti 2006, það var meira steypan og mikið rifist og var eg fyrstu 6 manuðina alltaf inná spitala og veikari og veikari en sem betur fer er þetta allt buið og betra, en þetta er lifsreynsla sem eg myndi samt ekki heldur viljað hafa misst af, ef maður dettur þá er bara að standa upp og retta úr sér rett eins og eg tel mig hafa gert og vona eg bara að  mer haldi áfram að ganga vel í skólanum  eins og mer er buið að ganga, þetta er svo skrytið, um leið og maður fer að læra það sem maður hefur áhuga á þa er maður svo ákveðinn og þrjoskur að það er æði hehehehe æji eg veit ekki eg vona bara þetta ár verði brill og mikið gaman og auðvitað mikil vinna !!!! sem eg veit að verður og á auðvitað að vera þegar maður er að læra.

Æji Sjarmi er svo sætur þið getið ekki truað þvi, hann er svo feitur, hann situr her hja mer og með þessi fallegu brunu augu, þeir sem þekkja mig vel vita hvað eg elska brun augu en auðvitað verður personuleikinn að vera alveg eins, of margir sem það ætti að svipta brun augu hehehe

 

En ja er að pæla kikja eitthvað ut i kvold

 

kv Hemmi 2 barna faðir ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 18:17:18 / hemmi

Bleikt sky !!!!!

Já þetta er það fallega orð sem eg kenndi dananum uti hehe og heldu þeir a ðþetta þyddi ljot hóra hehehehe en ja eins og þið vitið var eg í köben og var ekkert smá gaman, fórum á alla gay staðina, lentum á spitala, gaurar að reyna við okkur andres og vorum spreyngd næstum i loftu á áramótunum, eg var sko buinn að blogga her um hvert kvold en nei þurfti rafmagnið ða fara af heilv husinu þannig eg nenni ekki að skirfa um alla ferðina,

 

En ármótin voru snilld og vorum við á raðhusplaninu kl 12 þar sem við vorum hlaupandi um eins og litlar sma pikur þvi við turistafiflin vissum ekki að það væri alltaf innflytjendastrið á planinu og vorum við alltaf að fa heimatilbunarsprengjur inni i hopinn og urðum að hlaupa eins og eins og við ættum lifið að leysa hehehe svo fór eg með arndisi vinkonnu minni sem byr i köben á 2 hæða straight stað og var ekkert smá gaman mmarr og þræddum siðan alla gay staðin og var snilldar djamm hehehe komum heim til hennar 8 hálf 9 drullu drukkinn og hlægjandi af ekki neinu, mundum ekkert daginn eftir hvað var svona fyndið hehehe

 

svo forum við arndis seinastakvoldið mitt til strakan og var vingir sæti þar og kiktum við saman á jazz club sem var ykt gaman og svo á Pan og vorum við farinn snemma heim um 6 forum og fyrst á burger king ;)

 

Svo eyddi eg manudeginu i að snuast með honum Sumarliða þvi hann var að fara til London að hitta mömmu sina og skutlaði eg honum lika uppá völl og svo byrjaði skolinn og það er buið að vera allt brjalað að gera hja mer, strax að læra heima og eitthvað og svo er maður alltaf að reyna vinna eitthvað.

 

Heyrðu ja hvað haldið þið, ég er að fara fa annan hund ;) hann er alveg eins og litli pjakkurinn minn bara hann er rumlega 3 ára þessi og erum við að byrja taka hann i aðlogun á morgun og svo verður hann hja okkur um helgina sæti liusinn, ja og hann heitir Sjarmi og er pabbi hans Carters og er meira segja syninga hundur og ætlum við að láta halda árfam að syna hann og ætlar Ásta maria vinkona min að syna hann fyrir okkur ;)

 

Svo var party hjá Andresi á föstudaginn og var ekkert sma gaman fullt af fólki og stuð og var siðan farið á cozy hehehehe Svo var ég að vinna a laugardaginn og komu , þobbi,hallur, cucci, stella,nilli og tinna og voru að djamma og fórum við siðan á cozy og var bara mjög gaman, eftir cozy for eg með Andresi heim og gisti hja honum. Sunnudaginn vorum við heima hja Andresi bara að horfa á Dvd ykt nice og for eg heim um 18 til að borða og reyna læra og for ég svo um hálf 12 að sækja Sumarliða og var eg stoppaður á leiðinni heim fra honum af löggunni og varð að blasa hehehehe ykt gaman eða ekki, þoli ekki þessar löggu fjanda !!!!!!!

 

En já svo er bara að vera heima í kvold, ég skil þetta ekki, eg nenni ekki lengur neitt ut, vill frekar hanga heim bara og horfa á sjonvarpið eða fara ut að labba með litla pjakkinn og villinginn minn.

 

Svo er eg að fara til Hveragerðis um helgina, þvi hann Leifur okkar er að utskrifast ur lögfræðina þessa elska og er ég ekker sma stolltur af honum, þrælklar strakur :)

Ja heyrðu þorvarðu nei eg kinntist ekki einhverjum uti í köben, eg bara er svo sattur með allt þvi seinasta ár er buið og nytt að byrja og allt að gerast hja mer, skolinn gengur vel, þekki svo mikið af æðislegu fólki og svo góða foreldra sem mer þykir svo vænt um og litli strakinn minn, eg skil ekki folk sem er alltaf vælandi og gerir ekkert í þvi, þvi það skapar enginn nema maður sjalfur sina hamingju, hver þarf kærasta til þess, allavega ekki eg, ég a svo góða vini að það nægir mer og svo hef eg bara engan tima fyrir gaur, eg er með 20 einingar i skolanum og er að reyna vinna og læra og ekki má gleyma ég á allan andskotan, mig vantar ekki rassgat hehehehehe eg er farinn að kaupa 2 eins hunda hehehehehehe    samt svona í alvörunni fólk, hættið að væla og farið að gera eitthvað sem er gaman eða ykkur hefur dreymt um en ekki þorað, en samt ekki ganga uti í öfga. Skil heldur ekki þetta með að folk þarf alltaf að halda að grasið se alltaf grænna hinu meginn, þoli það ekki, það er það ekki fiflið þitt, maður er það sem maður ætlar ser og ef það bregst þá bara, standa upp og reyna aftur eða snua ser að öðru, ekki vera leggjast i volæði og vorkenna ser eða dæla í sig gleðipillugjafa, alveg hvað það gerir mig reiðan  :evil: þoli ekki svona fiflagang,

 

En já ég verð að fara gefa straknum minum að borða og fara með hann ut að labba á eftir, besta hreyfing í heimi ;)

 

Kv Hemmi námsmaður 2007


» 10 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 03:00:56 / hemmi

Kominn heim mmarrr

Jæja ég mun blogga i kvold hef ekki haft tima fyrr en þá ;)

Kv Hemmi Hamingju sami liggaliggalai .......


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10